Varnarmálastofnun tók til starfa í gær, 1. júní. Hlutverk hennar er að sinna varnartengdum verkefnum fyrir Íslands og heyrir hún undir utanríkisráðherra, er ber ábyrgð á öryggis og varnarstefnu Íslands á alþjóðavettvangi.

Gert er ráð fyrir að upp undir fimmtíu manns munu starfa þar. Stofnunin er til húsa á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Áætlaður heildarrekstrarkostnaður til varnarmála árið 2008 er 1.350 milljónir króna.

Af verkefnum hinnar nýju stofnunar má nefna rekstur íslenska loftvarnakerfisins en íslensk stjórnvöld tóku við yfirstjórn þessa og rekstri Ratsjárstofnunar úr hendi Bandaríkjanna 15. ágúst 2007.

Varnarmálastofnun mun reka öryggissvæði við Keflavíkurflugvöll, Miðnesheiði, Helguvík, Bolafjall, Gunnólfsvíkurfjall og Stokksnes, og annast rekstur mannvirkja NATO hérlendis. Gert er ráð fyrir að stofnunin vinni úr upplýsingum frá NATO og veita gistiríkisstuðning vegna loftrýmisgæslu sem hófst hérlendis á vormánuðum.

Ísland axlar ábyrgð á eigin vörnum

„Með því að reka íslenska loftvarnarkerfið og sjá um önnur þau eftirlits- og varnartengdu verkefni, sem nýstofnsett Varnarmálastofnun á að sinna, erum við Íslendingar í senn að axla ábyrgð á eigin vörnum og um leið að leggja til sameiginlegs öryggis grannríkja okkar á Norður-Atlantshafi og bandalagsríkja í NATO. Þannig rækjum við skyldur okkar sem sjálfstætt, fullvalda ríki,” sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, við opnun Varnarmálastofnunar.