Rekstrartekjur Almenna leigufélagsins voru 1.481 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins og hækkuðu rekstrartekjurnar um 18% frá sama tímabili í fyrra. Þá var EBITDA (rekstarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og fjármagnsliði) 793 milljónir króna fyrir tímabilið og jókst um ríflega 15% milli ára. Heildarafkoma tímabilsins eftir skatta nam 13 milljónum króna. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Heildareignir samstæðunnar námu 48.124 milljónum króna í lok júní og þar af voru fjárfestingareignir að andvirði 45.566 milljónir króna. Vaxtaberandi skuldir námu 30.616 milljónum króna og eigið fé samstæðunnar var 12.693 milljónir króna.

„Rekstrarhagnaður jókst á fyrri árshelmingi þrátt fyrir að eignasafnið hafi minnkað lítillega vegna sölu óhagkvæmra eigna. Grunnrekstur félagsins, langtímaleigan, hefur styrkst verulega á tiltölulega skömmum tíma en afkoma af skammtímaleigustarfsemi var undir væntingum. Mikil áhersla hefur verið á að styrkja skammtímaleigustarfsemi félagsins til framtíðar og eru horfur góðar fyrir komandi misseri. Þá hefur vaxtakostnaður lækkað í kjölfar vel heppnaðra skuldabréfaútboða auk almennra vaxtalækkana á markaði. Þarna er um að ræða umtalsverða breytingu sem verður á fjármögnun félagsins á seinni hluta tímabilsins þannig að áhrifin af henni munu ekki koma að fullu fram fyrr en á seinni árshelmingi. Vegnir verðtryggðir vextir á skuldum samstæðunnar voru 3,79% um áramótin en 3,55% þann 30. júní og vegnir óverðtryggðir vextir fóru úr 7,41% í 5,79% á sama tímabili.

Í upphafi árs kynntum við nýja vörumerkið ALMA á langtímaleigustarfseminni okkar og samhliða því hóf félagið að bjóða upp á lengri leigusamninga en áður hafa þekkst á almennum leigumarkaði. Viðskiptavinum félagsins býðst nú örugg langtímaleiga á föstu leiguverði til allt að sjö ára. Við erum afar þakklát fyrir frábærar viðtökur við þessum nýjungum," er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Almenna leigufélagsins í tilkynningunni.