Þrettán umsóknir bárust um embætti sýslumannsins í Kópavogi en umsóknarfrestur rann út 25. mars síðastliðinn. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. júní 2008 til fimm ára í senn.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Birna Salóme Björnsdóttir, aðstoðardeildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík
  • Bogi Hjálmtýsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins í Hafnarfirði
  • Brynjar Kvaran, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Kópavogi
  • Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
  • Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Keflavík
  • Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
  • Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á Fjármálasviði Reykjavíkurborgar
  • Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum
  • Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði
  • Ólafur Hallgrímsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði
  • Sigríður Eysteinsdóttir, löglærður fulltrúi í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík
  • Úlfar Lúðvíksson, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Reykjavík
  • Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík