Undanfarið hefur verið í gangi mikið átak hjá KEA á Akureyri við að fjölga félagsmönnum sínum. Hefur þeim fjölgað um 1300 og eru þeir nú níu þúsund talsins.

Kaupdagar KEA voru haldnir frá 23. nóvember til 18. desember og í kjölfarið ákvað stjórn KEA að bjóða íbúum á félagssvæðinu félagsaðild sér að kostnaðarlausu og að félagið greiddi, tímabundið, í stofnsjóð fyrir nýja félagsmenn.

Viðbrögð hafa ekki látið á sér standa og frá því að Kaupdagar KEA hófust 23. nóvember sl. hafa sem næst 1300 nýir félagsmenn bæst í hópinn og eru félagsmenn í KEA þar með orðnir ríflega níu þúsund.

Hafin er vinna við útgáfu fríðindakorts KEA, sem verður félagsmönnum að kostnaðarlausu, og er stefnt að útgáfu þess í febrúar 2006.