Nú stendur yfir talsverð uppbygging íbúða í Kópavogi. Áætlað er að um 1.300 íbúðir muni rísa þar á næstu fjórum árum, en á næsta hálfa árinu verða 120 þeirra tilbúnar. Meira en 500 íbúðir eru í byggingu eins og stendur í bæjarfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

„Það er jákvætt að það sé svo mikil uppbygging í Kópavogi og ánægjulegt að markmið nýsamþykktar húsnæðisskýrslu um að auka framboð á litlum íbúðum í nýju húsnæði muni nást á næstu árum,” er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs.

Helst verða íbúðaþéttingar á Glaðheimasvæðinu, Auðbrekku og Kársnesi auk svæðisins sunnan við Smáralind. Uppbygging á íbúðarhúsnæði í Kópavogi verður kynnt á iðnsýningunni Verk og vit í dag, en eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun stendur sýningin yfir í þrjá daga.