Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 13,2%. Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, hækkar um 0,22% frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar og hefur ekki hækkað svona lítið á milli mánaða í tvö ár.

Vísitalan gildir fyrir apríl. Í síðasta mánuði hækkaði vísitalan um 1%.