Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 13,3%% í ágúst. Þeir voru rúm 170 þúsund í ágúst í ár, en 150 þúsund í ágúst í fyrra. Frá áramótum eru farþegar Icelandair tæplega 945 þúsund, eða 19% fleiri en á fyrstu átta mánuðum síðasta árs. Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 13,2% í ágúst og hefur fjölgað um 15% á fyrstu átta mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra.

Þá fluttu Flugleiðir-Frakt 19,6% fleiri tonn í ágúst en í ágúst 2003 og hafa flutt 29,5% fleiri tonn á fyrstu átta mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í júlí voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 45,2% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Á fyrstu sjö mánuðum ársins eru fartímar hjá Loftleiðum-Icelandic 85% fleiri en í fyrra.