Aldrei hafa fleiri nemendur verið við nám í Háskóla Íslands (HÍ) en nú um áramótin settust 1,410 nýir nemendur á skólabekk í hinum ýmsu deildum Háskólans.

650 nemendur hefja grunnám og 760 hefja framhaldsnám.

Þetta kemur fram á vef HÍ en allir þessir nemendur hafa staðfest nám sitt með greiðslu skráningargjalds.

Þar kemur fram að heildarfjöldi umsókna um nám á vormisseri við Háskólann var rösklega 1,600. Endanlegur fjöldi nemenda sem hefur skólagöngu er mun meiri en ráð var fyrir gert en hlutfall milli umsókna og endanlegs nemendafjölda er hærra en það hefur áður verið.

Heildarfjöldi stúdenta í Háskóla Íslands er nú 13,650, sem er mesti fjöldi nemenda í sögu skólans, segir á vef HÍ.

Háskólinn hefur stækkað um rösklega þriðjung á innan við einu ári. Fyrst kom til sameining Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands í sumar og nú um áramótin stækkaði Háskólinn um nálega 10 prósent á einum degi.