Skráð atvinnuleysi í mars 2011 var 8,6%, en að meðaltali 13.757 manns voru atvinnulausir í mars og breyttist hlutfallstala atvinnuleysis ekki frá febrúar. Vinnumálastofnun birti tölur um atvinnuleysi í mars í dag.
Í marsmánuði barst Vinnumálastofnun ein tilkynning um hópuppsögn þar sem 15 manns var sagt upp störfum. Alls fengu 147 launamenn greitt úr Ábyrgðarsjóði launa í mars, þar af 62 starfandi í iðnaði.