Gengi 14 félaga af þeim 20 sem skráð eru á aðalmarkað Kauphallar Nasdaq á Íslandi hækkaði í viðskiptum dagsins.

Gengi hlutabréfa Icelandair hækkaði mest í viðskiptum dagsins, eða um 13,92% í 14 milljóna króna veltu og nemur verð hvers hlutar í félaginu nú 1,8 krónu. Líkt og fjallað hefur verið um að undanförnu rær félagið nú lífróður vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á farþegaflutninga á heimsvísu. Stefnir félagið m.a. á 30 milljarða hlutafjáraukningu í júní til að tryggja fjárhagsstöðu sína.

OMXI10 vísitala Kauphallar Nasdaq á Íslandi hækkaði um 1,86% í viðskiptum dagsins og stendur í kjölfarið í 1.843,90 stigum. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 1,3 milljörðum króna.