Fjórtán sóttu um starf forstjóra Landspítalans, átta konur og sex karlar. Nýr forstjóri tekur til starfa 1. september 2008 en umsóknarfresturinn rann út í gær, 15. júlí 2008. Þau sem sóttu um starfið eru:

Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Landspítala.

Anna Linda Bjarnadóttir, sjálfstætt starfandi lögmaður.

Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítala.

Stefán E. Matthíasson, læknir, sjálfstætt starfandi sérfræðingur.

Eydís K. Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri Landspítala.

Guðmundur Björnsson, læknir, meðeigandi og stjórnarformaður Janus endurhæfingar.

Helgi Þorkell Kristjánsson, aðstoðardeildarstjóri innkaupadeildar Icelandair Tech. Services.

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker háskólasjúkrahússins í Osló.

Kristján Oddsson, yfirlæknir stjórnsýslusviðs landlæknisembættisins.

María Heimisdóttir, sviðsstjóri Landspítala.

Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga slysa-og bráðasviðs Landspítala.

Ragnheiður Haraldsdóttir, sviðsstjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Sjöfn Kristjánsdóttir, læknir, sjálfstætt starfandi sérfræðingur.

Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri Landspítala.