Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2008 er 312,8 stig og hækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 280,8 stig og hækkaði hún einnig um 0,90% frá júlí.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. fimm ár.

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 14,5% sem þýðir að 12 mánaða verðbólga er 14,5%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 14,6% á sama tíma.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% sem jafngildir 11,5% verðbólgu á ári (10,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,9% (vísitöluáhrif -0,20%) en verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,8% (0,23%). Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,7% (0,19%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% (-0,06%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,11% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,05%. Þá hækkaði verð á efni til viðhalds húsnæðis um 6,3% (0,25%).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2008, sem er 312,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.176 stig fyrir október 2008.