Stjórn Nýherja leggur til að greiddur verði 15% arður til hluthafa á árinu 2006 vegna rekstrarársins 2005 eða 37 milljónir króna. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.

Hlutafé félagsins nam í árslok 248 milljónum króna en félagið á eigin hlutabréf að nafnverði 2 milljónir kr. Hlutafé í árslok skiptist á 347 hluthafa, en þeir voru 462 í ársbyrjun og fækkaði því um 115 á árinu.

Í árslok 2005 áttu þrír hluthafar yfir 10% af virkum eignarhlut í félaginu, en þeir eru:
Vogun hf. . ...............................24,1%
Sund ehf. ................................17,1%
Áning-fjárfestingar ehf. .....................11,6%