Stjórn Flugleiða samþykkti á fundi sínum í dag að leggja til við hluthafa á aðalfundi að greiddur verði 1,5 milljarður króna í arð til hluthafa. Þetta er um 44% af hagnaði félagsins eftir skatta árið 2004. Á aðalfundinum verður einnig tekin til afgreiðslu tillaga um breytingu á samþykktum sem felur í sér að nafni félagsins verði breytt.