Þjónustujöfnuður á fyrsta fjórðungi var jákvæður um 842 milljónir króna. Útflutningur á þjónustu nam  85 milljörðum króna en innflutningur nam 84,1 milljarði króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 14,9 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 15,8 milljörðum. Afgangur af ferðalögum var 1,7 milljarðar.