Hagnaður samstæðu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum nam tæplega 12,4 milljónum evra árið 2016 eða því sem samsvarar 1,49 milljörðum króna miðað við gengi dagsins í dag samanborið við 10 milljón evra hagnað árið áður. Þetta er meðal þess sem kom fram á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vefsíðu VSV.

Afkoma félagsins var sú næstbesta frá upphafi. Framlegð samstæðunnar (EBITDA) var 20,4 milljónir evra, nánast hin sama og 2015. Eigið fé jókst um 9% og eiginfjárhlutfall er nú 38%.

Fjárfestingar voru talsverðar á árinu. Nýtt uppsjávarvinnsluhús var tekið í notkun, nýr togari er í smíðum í Kína og skip voru seld og keypt. Framkvæmdakostnaður nam 18,4 milljónir evra, að frádregnu söluverði skipa.

„Þrátt fyrir miklar fjárfestingarnar minnkuðu heildarskuldir og skuldbindingar VSV um 3% vegna þess að handbært fé frá fyrri árum var notað til að takast á við nýfjárfestingarnar. Handbært fé dróst að sama skapi saman í reikningum félagsins eða um ríflega 60%. VSV tók engin langtímalán á árinu en greiddi 12,4 milljón evrur af langtímaskuldum sínum,“ segir í tilkynningu VSV um afkomu félagsins og aðalfund.

Aðalfundurinn samþykkti að greiða hluthöfum 8 milljónir evra eða því sem jafngildir 961 milljón króna á gengi dagsins í dag í arð, sem svarar til 5% af áætluðu markaðsvirði hlutafjár. Þetta er fjórða árið í röð sem hluthafar VSV ákveða að greiða sér arð upp á 8 milljónir evra.

Guðmundur í Brim í stjórn

Fjórir stjórnarmenn af fimm voru endurkjörnir á aðalfundinum: Einar Þór Sverrisson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Íris Róbertsdóttir og Rut Haraldsdóttir. Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims var kjörinn í stjórn í stað Ingvars Eyfjörð.

Í varastjórn félagsins voru kjörnir Eyjólfur Guðjónsson og Hjálmar Kristjánsson en þriðji frambjóðandinn til varastjórnar, Guðmunda Bjarnadóttir, fór inn í varastjórn á kynjakvóta og var því endurkjörin líkt og Eyjólfur.