Eignabyggð ehf. hagnaðist um 1,5 milljarða króna á síðast ári eftir fasteignaviðskipti við fasteignafélagið Kaldalón. Eignabyggð seldi þá 7.100 fermetra vöruhúsnæðið að Suðurhrauni 10 í Garðabæ sem hýsir m.a. vöruhús IKEA og 7,7 þúsund fermetra vöru- og geymsluhúsnæðið að Íshellu 1 í Hafnarfirði.

Í staðinn fékk Eignabyggð félag sem heldur utan um lóðir og byggingarétt að Steindórsreit við Hringbraut. Steindórsreitur var metinn á ríflega 1,8 milljarða króna í viðskiptunum en þar er heimilt að byggja 7.600 fermetra af íbúðarhúsnæði auk atvinnurýma.

Eignabyggð er í eigu Hannesar Þórs Baldurssonar og Brynjólfs Smára Þorkelssonar.

Nánar er fjallað um stærstu lóðaviðskipti síðustu missera í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.