Hydrogen Ventures Limited (H2V), alþjóðlegt orkufyrirtæki, hyggur á umfangsmikla framleiðslu vetnis hér á landi sem verður nýtt við framleiðslu metanól. Metanólframleiðslan verður að fullu umhverfisvæn en fyrirhugað er að verksmiðja H2V rísi í Auðlindagarðinum á Reykjanesi, í nágrenni við annað af tveimur raforkuverum HS Orku. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Verkefnið skiptist í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er áætlað að afkastageta verksmiðju H2V nemi 30 megavöttum úr jarðhita við framleiðslu á grænu metanóli. Í öðrum áfanga verði framleiðslugeta fyrirtækisins aukin verulega. Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður ríflega 100 milljónir evra, sem samsvarar um 15 milljörðum íslenskra króna.

„Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi við H2V. Þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem nýtist vel við uppbyggingu verkefnis af þessari stærðargráðu. Þá er ánægjulegt að þeir horfi til þeirra möguleika sem að Ísland og ekki síst Auðlindagarður HS Orku býður uppá en auk raforku mun HS Orka geta séð þeim fyrir vatni og koldíoxíði sem er nauðsynlegt við framleiðslu metanóls," segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, í tilkynningunni.

Allt vetnið sem verður til verður vottað „grænt vetni" sem þýðir að 100% orkunnar sem notuð er til að framleiða það kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Forsvarsmenn H2V segja að metanólið geti orðið hagkvæmur og umhverfisvænn orkugjafi fyrir sjávarútveginn auk innlenda bílaflotans, ekki síst sendi- og vörubifreiða. Verkefnið færi Ísland nær markmiði sínu um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.

Meira en 80% af orkunotkun Íslands byggir nú þegar á endurnýjanlegum orkugjöfum, fyrst og fremst jarðhita og vatnsafli. Markviss uppbygging innviða fyrir framleiðslu græns vetnis og metanóls getur, að mati forsvarsmanna H2V, gert Ísland að leiðandi þjóð á sviði endurnýjanlegrar og hreinnar orku með að skipta út jarðefnaeldsneyti í samgöngum fyrir endurnýjanlega orkugjafa.

„Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr kolefnislosun sinni og við teljum að nýting vetnis sé þar lykilatriði. Með reynslu sína á sviði endurnýjanlegrar orku getur Ísland verið í fararbroddi og sýnt heiminum hvernig hægt er að ná fullu kolefnishlutleysi. Við erum spennt að vera hluti af þessari nýju byltingu," segir Horacio Carvalho, framkvæmdastjóri H2V, í tilkynningunni.

HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk 9,9 MW vatnsaflsvirkjunar á Brú í Tungufljóti

Hydrogen Ventures er samstarfverkefni á milli Climate Change Ventures og Wellington Street Partners. Aðsetur fyrirtækisins er í Bretlandi og býr það yfir sérfræðiþekkingu á fjármögnun, nýjum tæknilausnum, grænum lausnum og stefnumörkun stjórnvalda og fyrirtækja. Megináhersla Hydrogen Ventures snýr að grænni vetnisframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum.