Alls bárust 15 umsóknir um starf orkumálastjóra, en umsóknarfrestur rann út þann 12. janúar 2021. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipar í stöðu forstjóra Orkustofnunar frá og með 1. maí 2021.

Meðal þeirra sem sótt hafa um embættið nú eru þeir Björn Óli Hauksson, fyrrverandi forstjóri Isavia, Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri OR og Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun.

Guðni A. Jóhannesson hefur starfað sem orkumálastjóri frá árinu 2008, en á undan honum voru þeir Þorkell Helgason, Jakob Björnsson og Jakob Gíslason í embættinu, en sá síðastnefndi var raforkumálastjóri á árinum 1947 til 1967, þegar stofnunin breytti um nafn.

Ráðherra hefur skipað nefnd til að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð um þá, en í nefndinni sitja þau Kristín Haraldsdóttir lektor og formaður nefndarinnar, Birgir Jónsson rekstrarhagfræðingur og Ingvi Már Pálsson skrifstofustjóri

Umsækjendurnir 15 eru:

  • Auður Sigurbjörg Hólmarsdóttir, hönnuður
  • Baldur Pétursson, verkefnastjóri
  • Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri
  • Björn Óli Hauksson, ráðgjafi
  • Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir, verkfræðingur
  • Guðmundur Bergþórsson, verkefnastjóri
  • Guðmundur Þóroddsson, stjórnarformaður
  • Halla Hrund Logadóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri
  • Heiðrún Erika Guðmundsdóttir, deildarstjóri
  • Jónas Ketilsson,yfirverkefnisstjóri
  • Jón Þór Sturluson, dósent
  • Lárus M. K. Ólafsson, sérfræðingur og viðskiptastjóri
  • Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri
  • Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, verkefnastjóri
  • Sigurjón Norberg Kjærnested, forstöðumaður