Stjórn Samkaupa hefur samþykkt að veita um 150 milljónum króna í aðgerðarpakka til starfsfólks fyrirtækisins. Yfirskrift aðgerðarpakkans er Takk fyrir að standa vaktina! og nær hann til allra starfsmanna Samkaupa sem eru um 1.400 talsins en er þó sérstaklega ætlaður starfsmönnum sem eru í framlínu verslana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum.

Þar segir að allir starfsmenn fái verulega aukinn afslátt af matvöru í verslunum fyrirtækisins, mánaðar sjónvarpsáskrift, páskaegg og andlega upplyftingu hjá Heilsuvernd. Þá fá starfsmenn auka orlofsdag á launum.

„Það hefur verið gríðarlegt álag á starfsfólki Samkaupa síðustu vikur, sérstaklega í því ástandi sem nú ríkir, og því mikilvægt að við hlúum vel að því," er haft eftir Gunni Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Samkaupa, í tilkynningu „Starfsfólkið okkar hefur unnið kraftaverk síðustu vikur og ég get ekki hrósað því nógu mikið. Það hefur sýnt ótrúlega þrautseigju og baráttuanda. Það minnsta sem við getum gert er að gefa til baka."

Þegar faraldurinn er genginn yfir mun starfsfólk einnig fá umbun frá fyrirtækinu en sá pakki er með yfirskriftina Njótum lífsins!

„Sá hluti er með áherslu á sumarorlof starfsmanna og er unninn með samstarfsaðilum Samkaupa svo sem hótelum, veitingastöðum, bílaleigum, kvikmyndahúsum, fjölskylduskemmtun og svo mætti áfram telja. Áherslan er á að njóta lífsins í sumar út um allt land," segir í tilkynningu Samkaupa.

„Starfsmenn okkar eiga svo sannarlega skilið að slaka á og njóta lífsins þegar að þessi vírus er genginn yfir. Við vonumst til þess að þeir nýti þessar ávísanir til að skoða þetta fallega land sem við búum á. Það er einnig von okkar að þetta gagnist þeim atvinnugreinum sem hafa verst farið út þessum faraldri og þannig leggi Samkaup sitt af mörkum,“ er haft eftir Gunni Líf.

Samkaup reka 61 verslun um land allt, meðal annars Nettó, Kjörbúðina, Krambúðina, Iceland og Samkaup Strax. Um 1.400 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu í um 670 stöðugildum.