Frá og með deginum í dag, 26. maí, er opið fyrir umsóknir um 150 ný sumarstörf hjá Háskólanum í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR.

Hægt er að senda inn starfsumsóknir til og með 5. júní nk. Flest störf hefjast 10. júní og er starfstímabilið tveir mánuðir. Störfin eru hluti af atvinnuátaki Félagsmálaráðuneytisins, Vinnumálastofnunar og Háskólans í Reykjavík og eru sérstaklega ætluð nemum, 18 ára og eldri.

„Sumarstörfin eru mjög fjölbreytt. Allar akademískar deildir háskólans óska eftir starfskröftum háskólanema til að aðstoða við nýsköpun í kennslu með þróun kennsluefnis og kennsluaðferða og við fjölbreyttar rannsóknir. Mikið er um störf sem tengjast tölvunarfræði, eins og til dæmis við forritun, gerð smáforrita og þróun notendaviðmóts. Einnig má nefna aðstoð við stafræna íslensku hjá Mál- og raddtæknistofu HR sem nýlega stóð fyrir hinni vinsælu Lestrarkeppni grunnskólanna í samstarfi við Almannaróm. Óskað er eftir tveimur starfsmönnum í fjölbreytt starf við nýstofnað Svefnsetur HR, meðal annars fyrir undirbúningsvinnu fyrir svefnrannsóknir. Einnig má nefna rannsóknir á þróun vélnámsaðferða, notkun minnisprófa vegna heilaskaða, hermilíkönum, afleiðingum heilahristings, bálkakeðjum og hagfræðirannsóknir. Störf sem tengjast starfsemi Háskólans í Reykjavík og veita jafnframt dýrmæta reynslu eru til dæmis við markaðsmál, vefmælingar og mannauðsmál," segir í tilkynningunni.