„Við erum með í kringum þrjár fullar gestabækur eftir sýninguna, en það eru reyndar ekki allir sýningargestir sem skrifa þar undir,“ segir Erling Klingenberg hjá Kling og Bang galleríi. Yfir 1.500 gestir mættu á síðasta sýningardag listaverksins The Visitors eftir Ragnar Kjartansson sem sýnt var í galleríinu um síðustu helgi. Sýningin sem hófst 30. nóvember á síðasta ári átti að standa til 9. febrúar en var framlengd til síðastliðins sunnudags í ljósi mikillar aðsóknar.
„Við vitum fyrir víst að þetta voru eitthvað á milli 1500 til 1700 gestir bara á sunnudeginum en við erum að taka saman heildartölur sem verða væntanlega tilbúnar um eða eftir næstu helgi,“ segir Erlingur.
Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir jól í fyrra að búið væri að selja öll sex eintökin af verki Ragnars. Hvert eintak fór á 120 þúsund Bandaríkjadali, jafnvirði rúmra 14 milljóna króna. Söluandvirði verkanna allra nam þessu samkvæmt um 84 milljónum íslenskra króna. Á meðal kaupenda voru helstu listasöfn og safnarar í heimi.
Nánar er fjallað um málið Í Viðskiptablaðinu, sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Hver eru verðmætustu sveitarfélögin?
- Segja Netflix ekki skaða Stöð 2 og SkjáEinn
- Leita eftir álitum um afnám hafta
- Póst- og fjarskiptastofnun gagnrýnir Íslandspóst
- Íbúðalánasjóður undirbýr markaðinn fyrir uppgreiðanleg bréf
- Rýnt í uppgjör TM, VÍS, Arion banka og Vodafone
- Smábátasjómenn vilja makrílveiðar án aflatakmarkana
- Minna fé er varið í landkynningarmál
- Hver er Carl Icahn?
- Viðskiptablaðið ræðir við Friðrik Þór Snorrason hjá Reiknistofu bankanna
- Fyrirtækjum í ferðaþjónustu fjölgar
- Börnin eru enga stund að læra á skíði
- Nærmynd af Salóme Guðmundsdóttur hjá Klak Innovit
- Huginn & Muninn eru á sínum stað auk Týs sem að þessu sinni fjallar um gjána á milli stjórnar og atvinnulífs
- Óðinn skrifar um umboðsvanda lífeyrissjóðanna
- Þá eru í blaðinu greinar, pistlar, myndasíður og margt, margt fleira