Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 15,1% í október. Þeir voru rúm 110 þúsund í október í ár, en 96 þúsund í október í fyrra. Frá áramótum eru farþegar Icelandair tæplega 1.170 þúsund, eða 17,92% fleiri en á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs.

Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 10,5% í október og hefur fjölgað um 14,5% á fyrstu tíu mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra.

Þá fluttu Flugleiðir-Frakt 12,7% fleiri tonn í október en í október 2003 og hafa flutt 26,9% fleiri tonn á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í október voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 12,4% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Á fyrstu tíu mánuðum ársins eru fartímar hjá Loftleiðum-Icelandic 70,3% fleiri en í fyrra.