Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2009 er 334,5 stig og lækkaði um 0,59% frá fyrra mánuði. Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist nú 15,2% en var í febrúar 17,6%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. 5 ár. Þar sést, eins og kunnugt er hvernig verðbólgan hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og náði 18,6% hámarki í janúar s.l. en síðan þá minnkað nokkuð.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 309 stig og hækkaði hún um 0,16% frá febrúr.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 5,1% (vísitöluáhrif -0,76%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,72% og -0,04% af lækkun raunvaxta.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 3,1% (-0,13%) og verð á mat og drykkjarvöru um 0,9% (-0,12%). Þá lækkaði verð á flugfargjöldum til útlanda um 8,3% (-0,11%).

Vetrarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,5% (0,26%).

Sem fyrr segir mælist 12 mánaða verðbólga nú 15,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 19,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 1,9% verðbólgu á ári (7,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).