Félagið Stjörnugrís skilaði 154 milljóna króna hagnaði á árinu 2012 samkvæmt ársreikningi félagsins. Samtals nam sala fyrirtækisins tæplega 1,8 milljarði króna en heildartekjur námu 1,9 milljarði. Rekstrargjöld námu 1,67 milljarði.

Eignir Stjörnugríss námu samtals í árslok 2012 rúmlega 2,1 miljarði króna og eigið fé félagsins 874 milljónum. Eigendur félagsins eru þeir Geir Gunnar Geirsson með 60% hlut og faðir hans og alnafni með 24% hlut. Hjördís Gissurardóttir átti svo 16% hlut í félaginu.