Hagnaður Swedbank á 2. ársfjórðungi nam 3,6 milljörðum sænskra króna, eða um 47 milljörðum íslenskra króna, og jókst um 16% á milli ára.
15% aukning varð á hreinum vaxtatekjum bankans og vóg upp á móti 7% samdrætti í þóknanatekjum og auknum afskriftum, samkvæmt Vegvísi Landsbankans.
Meðalspá fyrir afkomu bankans sem Bloomberg tók saman hljóðaði upp á 2,7 milljarða sænskra króna.
Bréf bankans hækkuðu um 14% í kjölfar uppgjörsins en sú hækkun gekk til baka að nokkru leyti eftir því sem leið á daginn.