Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um rúma 16 milljarða króna á öðrum fjórðungi þessa árs, sem er lakari niðurstaða en á sama tíma í fyrra er hún var neikvæð um rúma 14 milljarða króna. Þetta sýna tölur Hagstofunnar sem birtar voru í morgun.

Tekjuhallinn nam 3,8% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 8,7% af tekjum hins opinbera. Fyrstu sex mánuði ársins nam tekjuhallinn 2,9% af landsframleiðslu tímabilsins eða 6,8% af tekjum hins opinbera.sem er nokkru meiri halli en á sama tímabili 2012, þegar hann nam 6,3% af tekjum.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.913 milljörðum króna í lok annars ársfjórðungs þessa árs sem samsvarar 109,1% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 864 milljarða króna í lok ársfjórðungsins, en það samsvarar 47,5% af áætlaðri landsframleiðslu ársins.

Hrein peningaleg eign ríkissjóðs dróst saman um 61 milljarð króna milli 2. ársfjórðungs 2012 og 2013.