Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu Samstarfsnefndar um málefni aldraðra um úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra og nemur úthlutunin 164 milljónum króna sem skiptist á milli sex aðila. Hæsta styrkinn fær Kópavogsbær, 60 milljónir króna, til að reisa nýtt hjúkrunarheimili í Kópavogi.

Þá fær Snæfellsbær 30 milljóna króna styrk til að byggja 12 rýma hjúkrunarheimili og Akraneskaupstaður fær 27,2 milljónir sem framlag til að kaupa fasteign fyrir félagsstarf aldraðra. Aðrir styrkþegar eru Hjúkrunarheimilið Eir sem fær 15 milljónir króna til að reisa dagdeild fyrir 20 gesti í Spönginni í Reykjavík, Reykjavíkurborg sem 18 milljónir til að kaupa fasteign fyrir dagvistarúrræði fyrir heilabilaða og 3 milljónir til að breyta húsnæðinu, og að lokum Hafnafjarðarbær sem fær 4,5 milljónir til að breyta fasteign vegna dagvistunar fyrir alzheimersjúklinga og 2,8 milljónir vegna hvíldarinnlagna fyrir sama sjúklingahóp.

Búið að greiða skuldir og rétta við reksturinn

Hér er um að ræða síðustu úthlutun heilbrigðisráðherra úr Framkvæmdasjóði aldraðra, þar sem hann  hefur verið fluttur til  félags- og tryggingarmálaráðuneytis í samræmi við breytingar á verkaskiptingu í stjórnarráðinu. Þegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið tók við fjármálastjórn sjóðsins var eiginfjárstaða hans neikvæð um 128 milljónir króna og skuld við TR var rúmar 156 milljónir, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Við úthlutunina fyrir árið 2007 var gengið út frá því að lækka skuldir við Tryggingastofnun og koma eiginfé sjóðsins í jákvæða stöðu. Þegar sjóðurinn var fluttur til félagsmálaráðuneytis frá heilbrigðisráðuneyti var hann skuldlaus og með jákvætt eigið fé.