Aðdáendur Kobe Bryant keppast nú við að kaupa minjagripi tengda körfuboltagoðinu eftir að hann spilaði sinn síðasta leik á dögunum. Hafa þannig hlutir á borð við afrifna miða á körfubolta leiki gengið sölum og kaupum á internetinu.

Sérstaklega metnaðarfullur sölumaður gekk hinsvegar lengra í gær þegar hann bauð til sölu á Ebay poka sem hann fullyrðir að sé fullur af lofti af síðasta leik Bryant sem hann spilaði Stales Venter leikvanginum.

Aðdáendur tóku sérstaklega vel í uppátækið og bárust 85 boð í gripinn. Hæsta boðið hljóðaði upp á 13.600 dollara eða um tæpar 1,7 milljónir króna. Pokinn var hinsvegar tekinn af síðunni áður en uppboðinu lauk og því ekki með vissu vitað um afdrif hans.