Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2009 er 336,5 stig og hækkaði um 0,51% frá fyrra mánuði. Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist nú 17,6% en var í janúar 18,6%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. 5 ár.

Verðbólgan hefur sem kunnugt er hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og náði hámarki í síðasta mánuði.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 308,5 stig og hækkaði hún um 1,25% frá janúar.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 3,2% (vísitöluáhrif -0,49%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,45% og -0,04% af lækkun raunvaxta.

Á vef Hagstofu kemur fram að vetrarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% (0,28%). Verð á pakkaferðum til útlanda hækkaði um 8,6% (0,18%) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 12,8% (0,15%).

Sem fyrr segir hefur vísitala neysluverðs hækkað um 17,6% s.l. 12 mánuði en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 21,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6% sem jafngildir 10,9% verðbólgu á ári (14,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).