Mest viðskipti voru með bréf í N1 í dag, en þau námu 177 milljónum króna. Gengi bréfa hækkaði um 0,57% og hækkaði ekkert fyrirtæki meira en það í Kauphöllinni í dag. Velta með bréf í Regin nam 150 milljónum króna en gengi bréfa lækkaði um 1,52%. Ekkert fyrirtæki lækkaði eins mikið í verði.

Mun minni viðskipti voru með bréf í öðrum félögum. Velta með bréf í Icelandair nam 73 milljónum og hækkuðu bréfin um 0,57%. Velta með bréf í Sjóvá nam 58 milljónum króna og lækkaði gengi bréfanna um 0,30%.