Alls fengu 18% færri útlendingar úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í nýjasta vefriti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins þar sem fjallað er um útgáfu kennitalna til útlendinga hjá Þjóðská og birtar tölfræðiupplýsingar fyrir tímabilið 1. ágúst 2006-31. júlí 2008.

Þar kemur fram að sé horft til síðustu tveggja ára og þau borin saman má sjá að 13.166 fengu kennitölu frá 1. ágúst 2007 til 31. júlí 2008 samanborið við 14.868 frá 1. ágúst 2006 til 31. júlí 2007, sem er um 11% fækkun milli ára.