Vínbúðin seldi 18% meira af áfengum drykkjum yfir nýafstaðna páska heldur en yfir páskana í fyrra. Frá 6. til 11. apríl seldi Vínbúðin 621.957 lítra af áfengum drykkjum en í fyrra seldust 526.239 lítrar í vikunni fyrir páska. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Þá fjölgaði viðskiptavinum Vínbúðarinnar um 4% á sama tímabili. Sala Vínbúðarinnar í mars sl. var rúmlega 8% meiri en í mars í fyrra. Aukningin á milli ára yfir fyrstu þrjá mánuði ársins var 7,9%.