Velta á hlutabréfamarkaði Kaupahallarinnar nam tæpum 1,8 milljörðum króna í dag en velta með skuldabréf nam tæpum 2 milljörðum króna. Úrvalsvísitalan hækkað um 1,46% en frá áramótum hefur hún hækkað um 5,4%.

Mest hækkun var með bréf Icelandair Group sem hækkuðu um 2,2% en Eimskipafélagið hækkaði um 2,11%. Hagar hækkuðu um 1,9% og Marel um 1,4%. Tryggingamiðstöðin var eina félagið sem lækkaði í dag, samtals niður um  0,19%.