18% aðspurðra telja líklegt að þeir lendi í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af íbúðarhúsnæði næstu 3 mánuði. 4% til viðbótar segja líklegt að það gerist næstu 6 mánuði. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði meðal fasteignakaupenda fyrir Ibúðalánasjóð.

60,8% sögðust telja ólíklegt að þeir lentu í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af íbúðarhúsnæði á næstu 6 mánuðum. 17,3% segja hvorki líklegt né ólíklegt að þetta gerist næstu 6 mánuði.

Leiðrétting: Í fyrstu útgáfu fréttarinnar var vísað til fasteignakaupenda en hér er um að ræða könnun meðal almennings. Önnur könnun meðal fasteignakaupenda er á leiðinni.