Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins sagði í ræðu á Alþingi í fyrr í dag að verið væri að setja met í aukningu ríkisútgjalda í umræðum um fjárlög 2023.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lagði fram breytingu á fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í september. Aukast ríkisútgjöldin um 51 milljarð við það.

Í ræðu sinni sagði Bergþór þetta mestu aukningu ríkisútgjalda í langan tíma, að minnsta kosti frá árinu 2007 þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar var við völd.

Raun­veru­lega sýn­ist mér því að hér sé verið að leggja til út­gjalda­auka á milli ára upp á 180 millj­arða. Þetta er án nokk­urs vafa met í millj­örðum talið í þróun út­gjalda rík­is­sjóðs á milli ára. Maður taldi ólík­legt að nokk­urn tím­ann yrði viðlíka ár og þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæðis­flokks og Sam­fylk­ing­ar gerði hér allt fyr­ir alla árið 2007 með mik­illi aukn­ingu út­gjalda á milli ára en þessi þróun er al­veg ör­ugg­lega að bæta mjög veru­lega í það.“

5 milljarðar til viðbótar í útlendingamál

Bergþór gerði einnig að umtalsefni 5 milljarða aukningu til útlendingamála síðan úr frumvarpinu sem lagt var fram í september.

„Virðulegur forseti. Nú hefur hæstvirtur fjármálaráðherra lýst því yfir að ástandið á landamærunum sé ekki stjórnlaust þvert á skoðun hæstvirts dómsmálaráðherra. Samt leggur fjármálaráðherra til í þessu að 5 milljörðum verði bætt við útlendingamál frá því að hæstvirtur ráðherra lagði fram fjárlagafrumvarp í september. Það er einn heill almanaksmánuður á milli. Hvernig er hægt að lýsa þessu öðruvísi en sem stjórnlausu ástandi og núna í ríkisfjármálum? Öðruvísi mér áður brá.“

Bergþór sagði að um stjórnlausa aukningu ríkisútgjalda væri að ræða og óskaði eftir að eiga orðastað við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.