Orri Hlöðversson bæjarstjóri og Sævar Jónsson framkvæmdastjóri hafa undirritað samning um umfangsmikla gatnagerð í Hveragerði. Gatnagerðinni verður skipt í tvo hluta og skal fyrri áfanganum lokið þann 1. júní 2005 og hinum síðari þann 1. júní 2006. Samningurinn hljóðar upp á rúmar 183 milljónir króna að þegar að hlutur vatns- og orkufyrirtækja í verkinu er talinn með. Framkvæmdir eru þegar hafnar.