Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 30. júlí til og með 5. ágúst 2004 var 108. Þar af voru 91 samningur um eignir í fjölbýli, 13 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.875 millj. kr. og meðalupphæð á samning 17,4 millj. kr.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samninar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 87 millj. kr. og meðalupphæð á samning 12,5 millj. kr.