Íslensk fjárfesting hagnaðist um 188 milljónir króna á síðasta ári og jókst hagnaður verulega frá fyrra ári er hann nam 3 milljónum króna. Fjárfestingatekjur félagsins námu 188 milljónum króna en árið áður námu tekjurnar 3,5 milljónum króna.

Eignir fjárfestingafélagsins námu 5,7 milljörðum króna í árslok 2019 og eigið fé nam 4,1 milljarði króna. Íslensk fjárfesting á hin ýmsu dótturfélög, m.a. ferðaþjónustufyrirtækið Kilroy og RR hótel sem rekur hótel í miðbænum. Þórir Kjartansson er framkvæmdastjóri félagsins.