Fyrirtækið 1939 Games hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra afhenti Vaxtarsprotann í morgun í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal.

1939 Games er tölvuleikjafyrirtæki sem gefur út leikinn KARDS en sögusvið leiksins er síðari heimsstyrjöldin. Velta fyrirtækisins jókst um 1.466% á milli áranna 2019 og 2020 þegar veltan fóru úr rúmum 15 milljónum króna í 244 milljónir króna. Um er að ræða metvöxt í veltu frá því Vaxtarsprotinn var fyrst afhentur árið 2007.

Sjá einnig: Sprotar - Hagnaður á útgáfuárinu hjá 1939 Games

Tvö önnur fyrirtæki, Coripharma og Algalíf, hlutu einnig viðurkenningar. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf. Velta Coripharma jókst um 392% á milli áranna 2019 og 2020, fór úr 180 milljónum króna í 888 milljónir króna eða nær fimmfaldaðist.

Algalíf hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir að velta í fyrsta sinn einum milljarði króna. Algalíf framleiðir örþörunga í hátækni vatnskerfum og vinnur úr þeim astaxanthín sem nýtt er í fæðubótaefni og snyrtivörur um allan heim. Fyrirtækið jók veltu úr 625 milljónum króna í rúman 1,2 milljarð króna á einu ári.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 15. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Gísli Hjálmtýsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís, Fida Abu Libdeh fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann:

-    2007 Marorka
-    2008 Mentor
-    2009 Mentor
-    2010 Nox Medical
-    2011 Handpoint
-    2012 Valka
-    2013 Meniga
-    2014 DataMarket
-    2015 Kvikna
-    2016 Eimverk
-    2017 Kerecis
-    2018 Kaptio
-    2019 Carbon Recycling International
-    2020 Kerecis
-    2021 1939 Games

Eftirfarandi fyrirtæki hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt:

-    2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi
-    2008 Betware, Valka, Kine
-    2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica
-    2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs
-    2011 Marorka, Trackwell, Gogogic
-    2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice
-    2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult
-    2014 Valka, Nox Medical, Skema
-    2015 Kvikna, Valka
-    2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka
-    2017 TeqHire, Valka, Kvikna
-    2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni
-    2019 Taktikal, Kerecis
-    2020 Carbon Recycling International, Pure North Recycling
-    2021 Coripharma, Algalíf

Vaxtasproti 2021
Vaxtasproti 2021
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Frá afhendingu viðurkenninganna. Í neðri röð frá vinstri eru Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma,  Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Guðmundur Kristjánsson, einn af stofnendum 1939 Games, Hekla Arnardóttir, stjórnarformaður 1939 Games, og Orri Björnsson, forstjóri Algalíf. Í efri röð frá vinstri eru Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, Ingólfur Ævarsson, markaðsstjóri 1939 Games, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Fida Abu Libdeh, formaður Samtaka sprotafyrirtækja, og Lýður Skúli Erlendsson frá Rannís.