Á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 3.500 manns án vinnu og í atvinnuleit sem samsvarar til 2% vinnuaflsins samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.  Þetta er minna atvinnuleysi en fyrir árið síðan þegar það mældist 2,4% á fyrsta ársfjórðungi. Atvinnuleysi mældist 2% bæði hjá körlum og konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,9%.

Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru 500 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 15,1%, 1.400 manns eða 39,6% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu og 600 manns, eða 17,8% voru búnir að leita lengur en 6 mánuði. Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2007 var 172.800 manns og fjölgaði um 9.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 176.300 manns sem jafngildir 82,2% atvinnuþátttöku.Atvinnuþátttaka karla var 86,2% en kvenna 77,9%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 41,5 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 47,1 klst. hjá körlum en 34,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,3 klst., 50,2 klst. hjá körlum en 42 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 23,5 klst., 21,5 klst. hjá körlum en 24,1 klst. hjá konum.