Þýski þróunarbankinn KfW, sem er næststærsti krónubréfaútgefandinn til þessa, tilkynnti í gær um 2 milljarða króna viðbótarútgáfu í flokk krónubréfa sem er á gjalddaga 15. júlí 2010.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis í morgun.

Þar kemur fram að bréfin bera 9,5% vexti en Greining Glitnis vekur athygli á því að bréfin voru seld á yfirverði (104) og er ávöxtunarkrafan því talsvert lægri, eða nálægt 7%.

„Til samanburðar er ávöxtunarkrafa á ríkisbréfaflokknum RIKB 10 0317, sem hefur lítið eitt styttri líftíma en ofangreint krónubréf, nú 13,35% og því er ljóst að kaupendur útgáfunnar nú eru að fá verulega lægri vexti fyrir sinn snúð en hægt er að nálgast á Íslandi,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni.

Að útgáfunni í gær meðtalinni telur krónubréfaflokkurinn nú 7 milljörðum króna.

Útgáfa mánaðarins nemur nú alls 15 milljörðum króna en í heild hafa 27,5 milljarðar fallið á gjalddaga í mánuðinum.

Þá kemur fram í Morgunkorni að heildarútistandandi krónubréf nema nú um 306 milljörðum króna. Næsti krónubréfagjalddagi er 6. október næstkomandi en þá fellur á gjalddaga 29 milljarða króna útgáfa Evrópska fjárfestingarbankans (EIB).