Tap flugfélagsins Play nam 14,3  milljónum dala á öðrum ársfjórðungi 2022, eða sem nemur um 2 milljörðum króna, samanborið við 1,4 milljón dala á sama tímabili á síðasta ári, þegar félagið var enn í startholunum með að hefja flugrekstur. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 14,4 milljónir Bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi 2022. Í uppgjörstilkynningu segir að þetta hafi verið viðbúið, þar sem félagið hafi enn ekki náð tilætlaðri stærðarhagkvæmni á fjórðungnum ásamt sögulega háu eldsneytisverði.

Tekjur á fjórðungnum námu 32,5 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 9,6 milljónir Bandaríkjadala á fyrsta ársfjórðungi 2022. Þessi aukning á tekjum stafi fyrst og fremst af auknum umsvifum, með stækkun leiðarkerfis og innleiðingu tengiflugsleiðakerfisins en einnig hafi bókunarstaðan verið sterk og sumarið háannatími í flugrekstri. 

Handbært fé þann 30. júní nam 39,5 milljónum Bandaríkjadala með bundnu fé. Eiginfjárhlutfall var 13.4% og félagið hefur engar ytri vaxtaberandi skuldir.

Reikna með 20 milljarða veltu

Play gerir ráð fyrir að farþegar félagsins verði um 800 þúsund árið 2022. Þá gera áætlanir PLAY ráð fyrir um 20 milljörðum íslenskra króna (150-160 milljónir Bandaríkjadala) í veltu í ár, á fyrsta heila starfsári félagsins. „Einingakostnaður, að frátöldum eldsneytiskostnaði, minnkar jafnt og þétt og spár félagsins sýna fram á jákvæða rekstrarafkomu (EBIT) á síðari hluta þessa árs. PLAY náði markmiði sínu í sumar um að einingakostnaður (án eldsneytis) sé undir fjórum bandarískum sentum. Félagið hefur því náð góðum árangri við að halda kostnaði niðri og einingakostnaður fer áfram lækkandi með auknum umsvifum,“ segir í uppgjörstilkynningu.

Á öðrum ársfjórðungi flutti félagið rúmlega 181 þúsund farþega og sætanýtingin var 74,8% að meðaltali. Í júlí flugu 110 þúsund farþegar með Play. Bókunarstaðan fyrir haustið og veturinn er, að því er kemur fram í uppgjörstilkynningu, áfram góð.

„Eftir flugtak og klifur síðustu mánaða er nú fyrst óhætt að segja að PLAY sé komið í farflugshæð. Í flugbransanum þýðir það að við séum orðin stöðug. Annar ársfjórðungur var síðasti hluti klifursins og nú á þriðja ársfjórðungi er viðskiptamódel félagsins loks orðið að veruleika. Eftir hraða en örugga uppbyggingu með fjölda nýrra áfangastaða, innleiðingu tengiflugsleiðakerfis og móttöku flugvéla er reksturinn loks kominn í fastar skorður. Ég er stoltur af öllu starfsfólki PLAY sem hefur komið fyrirtækinu á koppinn á stuttum tíma í mjög kviku og flóknu rekstrarumhverfi. Við komum út úr þessum uppbyggingarfasa með sterka fjárhagsstöðu og loks eru ytri aðstæður okkur hagfelldari eftir nokkurn mótvind síðustu misseri. Til dæmis sjáum við eldsneytisverð fara ört lækkandi. Við sjáum fram á bjarta tíma, bókunarstaðan er sterk og til stendur að skila jákvæðri rekstrarafkomu á síðari helmingi ársins. Fólk er augljóslega hætt að setja COVID-19 fyrir sig þegar það tekur ákvörðun um að ferðast sem sést til dæmis á því að mun færri kaupa sér forfallavernd og þá er fólk farið að bóka flug lengra fram í tímann. Stóru verkefnin í vetur eru að taka á móti fjórum nýjum flugvélum sem bætast í flotann næsta vor og að ráða inn nýjar áhafnir. Þessi frábæri 300 manna starfsmannahópur PLAY mun nefnilega stækka og við hlökkum til að bjóða um 200 manns til viðbótar í leikinn,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í tilkynningu.