Rarik ofh., áður Rafmagnsveitur ríkisins, högnuðust um  2.726 milljónum króna á síðasta ári, en það er lækkun um tæp 2% frá árinu 2018 þegar hagnaður ársins nam 2.781 milljónum króna.

Reiknuð áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets lækkuðu og voru 770 milljónir króna en voru 909 milljónir á árinu 2018. Heildarhagnaður að teknu tilliti til þýðingarmunar hlutdeildarfélags nam 3.103 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 5.740 milljónum króna eða 34,2% af veltu ársins, samanborið við 33,5% á árinu 2018. Handbært fé frá rekstri nam 4.307 milljónum króna. Rekstrartekjur hækkuðu um tæpt 1% frá árinu 2018 og námu 16.777 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um tæp 2% og námu 13.276 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2019 nam 3.501 milljónum króna sem er rúmlega 3% lækkun frá fyrra ári. Minni veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum og lægri verðbólga á árinu gerðu það að verkum að fjármagnsliðir voru heldur hagstæðari en á fyrra ári. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 1.059 milljónum króna, en á árinu 2018 námu þau 1.274 milljónum króna.

Eiginfjárhlutfallið hækkaði um nærri tvær prósentur

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 68.306 milljónum króna og hækkuðu um 2.353 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 24.380 milljónum króna og lækkuðu um 441 milljón króna frá fyrra ári. Eigið fé var 43.926 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 64,3% samanborið við 62.4% í árslok 2018.

Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 5.512 milljónum króna, sem er 1.818 milljónum króna hærra en árið á undan. Fjárfestingar í hitaveitum voru minni en áætlað var og færast yfir á árið 2020, en fjárfestingar í dreifikerfinu með jarðstrengjum voru umfram áætlanir. Í árslok 2019 var hlutfall jarðstrengja í dreifikerfi RARIK komið í 65%.

Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eiganda RARIK sem er Ríkissjóður Íslands.