Tuttugu ár eru liðin frá frækilegum björgunarafrekum sem unnin voru í Vöðlavík, sem liggur norður af Reyðarfirði, þegar tvö skip strönduðu þar með stuttu millibili. Í tilefni af því hafa björgunarsveitirnar látið útbúa minnisvarða um þessa atburði.

Annars vegar var allri áhöfninni á Bergvík VE-105 bjargað í land með fluglínutækjum björgunarsveitanna þann 18. desember 1993 og hins vegar þann 10. janúar 1994 þegar sex af sjö manna áhöfn björgunar- og dráttarskipsins Goðans var bjargað með frækilegri aðstoð 56. þyrlusveitar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli við afar erfiðar aðstæður.

Ákveðið hefur verið að afhjúpun minnisvarðans fari fram við hátíðlega athöfn í Vöðlavík á föstudaginn og jafnframt verður haldin björgunaræfing í Vöðlavíkinni með þátttöku björgunarsveita á Austurlandi og þyrlu Landhelgisgæslunnar.