Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 20% í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 89 þúsund farþegum árið 2003 í rúma 107 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 20% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 25%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 20% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr rúmum 1.291 þúsund farþegum í tæplega 1.550 þúsund farþega.