Verulega syrtir í álinn í uppsjávargeiranum á Íslandi á þessu ári miðað við síðasta ár. Gróflega áætlað gæti útflutningsverðmæti uppsjávarafurða dregist saman um allt að 25% eða um 20 milljarða króna, að því er Teitur Gylfason hjá Iceland Seafood segir í nýjustu Fiskifréttum.

Munar þar mest um lélega loðnuvertíð, en auk þess minnkar kvóti norsk-íslensku síldarinnar um þriðjung milli ára og óvissa ríkir á makrílmörkuðum meðal annars vegna ástandsins í Austur-Evrópu.

Útflutningsverðmæti uppsjávarafurða á síðasta ári nam rösklega 80 milljörðum króna en gæti farið niður í um það bil 60 milljarða í ár.

Nánari umfjöllun er í Fiskifréttum sem komu út í dag, en nálgast má blaðið með því að smella á hlekkinn Tölublöð.