Félagið Verksmiðjan Norðurpóllinn ehf. sem skráð er fyrir vefsíðunni bleikt.is tapaði rúmlega 20 milljónum króna á árinu 2011. Eigið fé félagsins var neikvætt um 30,6 milljónir í lok ársins. Í ársreikningi Vefpressunnar og á heimasíðu Fjölmiðlanefndar kemur fram að félagið sé í 100% eigu Vefpressunnar.

Þrátt fyrir þetta tap félagsins og neikvæða eiginfjárstöðu þá var félagið metið á 20 milljónir króna í ársreikningi Vefpressunnar fyrir árið 2011 sem var skilað fyrir stuttu til Fyrirtækjaskrár.