Árið 2008 var metár í kjötsölu, bæði í heildarmagni og sölu á íbúa. Alls seldust 25.833 tonn af kjöti eða 81,5 kg á íbúa, 2 kg meiri en árið 2007.

Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins.

Þar kemur fram að sala á kindakjöti var 7.481 tonn, 7,8% meiri en 2007 og sú mesta síðan 1993 en þá var kindakjötssala 8.088 tonn. Þá var metsala á svínakjöti eða 6.667 tonn, 9,5% meiri en árið 2007.

Sala nautakjöts var 3.613 tonn, 1,4% aukning frá fyrra og 677 tonn seldust af hrossakjöti. Sala alifuglakjöts var 7.395 tonn sem þýðir reyndar 0,8% samdráttur frá fyrra ári en þá var meiri sala en nokkru sinni áður á alifuglakjöti að sögn Bændablaðsins.

Þá var framleiðsla kjöts 2,8% meiri en árið 2007, eða alls 27.585 tonn.