WOW air flutti 173.371 farþega til og frá landinu í desember eða um 207% fleiri farþega en í desember árið 2015. Sætanýting WOW air í desember var 86% en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 85%. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 262% í desember frá því á sama tíma í fyrra.  Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Wow air.

Árið 2016 flutti Wow air tæplega 1,7 milljón farþega en það er 130% fjölgun frá árinu áður. Sætanýting flugfélagsins var 88% árið 2016 en árið áður var hún 86%. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 160 prósentustig milli ára.

„Flugfloti WOW air verða 17 þotur frá og með næstkomandi sumri; þrjár Airbus A330, ellefu Airbus A321 og þrjár Airbus A320. Félagið mun bæta við sig þremur Airbus A321ceo, einni Airbus A321neo og einni Airbus A320neo í flotann á þessu ári sem eru með um 35-45% lægri eldsneytiskostnað per sæti miðað við algengustu flugvélar sem er notaðar eru í flugi til og frá landinu í dag. Þessar fimm vélar eru allar glænýjar, módel 2017 og koma beint frá verksmiðjum Airbus í Evrópu,“ segir í tilkynningunni.

Fjöldi ferðamanna til Íslands jókst um 506 þúsund milli áranna 2015 og 2016 og er hlutdeild Wow air í aukningunni 38%.

Þakkar fyrir traustið

„WOW air á mikla hlutdeild í þeirri aukningu á ferðamönnum sem koma til landsins og sama má segja um þá Íslendinga sem ferðast út fyrir landsteinana. Ég vil þakka kærlega fyrir það traust sem farþegar hafa sýnt okkur á liðnu ári. Það verður ánægjulegt að taka á móti þessum fimm nýju vélum á árinu en þær eru mun sparneytnari en áður hefur þekkst og þar með getum við haldið áfram að lækka verðið enn frekar“ er haft eftir Skúla Mogensen stofnanda og forstjóra WOW air í tilkynningunni.